Sendingarstefna
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. t2 hjól ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá t2.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimsending er á pöntunum 15.000 kr. og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.